Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO) liðið Eskimo er nýlegt lið á klakanum sem inniheldur vel völdum leikmönnum, en þeir eru:
Hrafnkell “Rusty” Rúnarsson
Axel “SeliHD” Gíslason
Hervald “Hulkules” Gíslason
Birkir “Godthor” Sigurðsson
Stefan “JWalker” Walker
Skrunið niður til að horfa á vídeó.
“Við stefnum á að komast langt á Haustdeild Tuddans 2016. Við höfum verið að koma inn frekar sterkir á forkeppnum Tuddans og lofar það góði fyrir framtíð liðsins og stefnum á að komast langt á Tuddanum. Við urðum fyrir því óhappi í gær að einn leikmaður úr liðinu hann Alastair “Allinn” Rendall braut á sér olbogann og getur ekki spilað með okkur næstu 6 vikur. Þannig það hafa verið gerðar smá breytingar á lineuppinu.”
sagði Rusty í samtali við eSports.is aðspurður um framtíðaráhorf hjá liðinu. Eskimo keppir t.a.m. í dag í haustdeild Tuddans í dag og sigurvegari keppninnar tryggir sér sæti í Úrvalsdeild en 2-4. sæti tryggja sér sæti í 1. deild og eru 11 lið skráð til leiks.
Vídeó
Hér að neðan er klippa frá forkeppni Tuddans þar sem Rusty fer hamförum:
Hvetjum alla að subscribe yotube rásina hjá Rusty með því að smella hér.
Mynd: aðsend