Heim / PC leikir / LAN-skattur kynntur til sögunnar í Svíþjóð
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

LAN-skattur kynntur til sögunnar í Svíþjóð

lanmot_140220123Sænskir tölvuleikjaspilarar þurfa nú að kaupa leyfi af hinu opinbera fyrir allt að 600.000,- kr. til að fá að tengja tölvur sínar saman á svokölluðu LAN-móti.

Þetta varð niðurstaða „happdrættisstofu” Svía við túlkun á löggjöf um spilakassa sem sett var í fyrra af stjórnvöldum. Happdrættisstofan lítur svo á að tölvur sem notaðar eru til að spila tölvuleiki falli undir löggjöfina.

„Samkvæmt lögunum eru þetta spilakassar, það er enginn munur þarna á,” sagði Johann Röhr í samtali við tölvuleikjatímaritið T3. Tölvur sem eru tengdar saman í öðrum tilgangi en að spila tölvuleiki munu ekki þurfa að kaupa leyfi.

Til viðbótar leyfinu getur þurft að kaupa skoðunargjald ákveði happdrættisstofan sænska að vera með eftirlit með LAN-mótinu

Tölvuleikjaiðnaður Svía, sem hýsa stærsta LAN-mót í heimi á ári hverju, mun líkast til bíða mikinn skaða vegna þessa.

Ósáttir við gjaldið
„Þeir jafna mótunum okkar við það að þú sért á pöbb í spilakassa. Auðvitað erum við brjálaðir,” sagði Erik de Basso, fjárhaldsmaður LAN-mótsins Inferno Online. Hann er mjög gagnrýninn á hinn nýja skatt sem mun kosta fyrirtæki hans jafnvirði þúsunda dollara árlega.

Happdrættisstofan hefur nú tilkynnt öllum fyrirtækjum sem skipuleggja LAN-mót að þau þurfa nú að sækja um leyfi hjá stofunni til að fá að halda þau. Enn sem komið er munu einstaklingar sem hittast á litlum LAN-mótum ekki þurfa að sækja um leyfið.

Greint frá á visir.is.

Nánar er sagt frá málinu á FriaTiden.se

Mynd úr safni.

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

x

Check Also

Íslenskt CS:GO lan í uppsiglingu

Það má með sanni segja ...